Hjúkrunarráð Landspítala hvetur Alþingi Íslendinga til að auka fjárveitingar til Landspítala svo unnt sé að veita viðunandi þjónustu og tryggja öryggi sjúklinga.
Undanfarin fimm ár hefur niðurskurður verið gríðarlegur og tókst með miklu aðhaldi að halda spítalanum innan fjárheimilda þrjú ár í röð, þrátt fyrir aukna starfsemi. Niðurskurðurinn hefur haft mikil áhrif á starfsemi og innviði spítalans. Afleiðingin er m.a. úr sér genginn tækjabúnaður, mikið álag og atgervisflótti meðal heilbrigðisstarfsmanna.
Nú er Landspítali kominn um 1,1 milljarð fram úr fjárveitingum ársins 2013 og ljóst að bæti stjórnvöld ekki við fjárframlög næsta árs hefur það alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir starfsemi spítalans.
Hjúkrunarráð varar við hugmyndum um sérstakt gjald á sjúklinga sem leggjast inn á sjúkrahús. Það er nú þegar áhyggjuefni hversu háar upphæðir sjúklingar greiða fyrir heilbrigðisþjónustu. Auk þess verður innheimtan flókin og dýr.
Hjúkrunarráð Landspítala vill minna á nauðsyn þess að endurnýja húsakost spítalans. Núverandi húsnæði er hvorki boðlegt sjúklingum né starfsmönnum og hentar ekki nútíma heilbrigðisþjónustu, þar sem sjúklingar þurfa sérhæfða meðferð og flókinn tækjabúnað.
Íslendingar þurfa skýra og heildstæða framtíðarsýn í heilbrigðismálum sem þjóðin getur sameinast um til langs tíma. Hjúkrunarráð hvetur Alþingi allt til að vinna að slíkri framtíðarsýn.