Forsvarsmenn Klofnings ehf fiskþurrkunar á Suðureyri færðu sjúkraþjálfun á Landspítala Grensási nýtt þjálfunartæki að gjöf mánudaginn 7. október 2013. Tildrögin voru þau að Jón Víðir Njálsson verkstjóri og Sigurður Ólafsson, fyrrverandi framleiðslustjóri fyrirtækisins, hafa báðir verið í endurhæfingu á þar.
Um er að ræða svokallað NUSTEP alhliða þjálfunartæki fyrir handleggi og fætur og nýtist bæði fyrir styrktar- og þolþálfun. Tækið er sérstaklega hannað fyrir þá sem þurfa að sitja við þjálfun og hentar mjög vel fyrir fatlaða. Aðgengi að tækinu er mjög gott og auðvelt er að flytja sig úr hjólastól í það.
Þjálfunartækið kemur í góðar þarfir en langflestir sjúklingar deildarinnar geta nýtt sér þjálfun í því.