Starfsmenn Landspítala tóku með erindum og veggspjöldum þátt í fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands sem haldin var 11. október 2013. Málstofur voru þrjár, frá grunnvísindum til afurða, nýjungar í heilbrigðisþjónustu og tæknilausnir í sjúkraþjálfun.