"Staðhæfingar sem standast ekki" er yfirskrift ráðstefnu um líknarmeðferð sem haldin verður laugardaginn 12. október 2013 á Grand hótel Reykjavík. Ráðstefnan er í tilefni af alþjóðlegum degi líknar og stendur yfir frá kl. 14:00 til 16:00.
Fyrir ráðstefnunni standa Hollvinasamtök líknarþjónustu, Samtök um líknarmeðferð, Landspítali og Krabbameinsfélagið.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.