Ágæta samstarfsfólk!
Ég hef ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landspítala. Ég hef tilkynnt heilbrigðisráðherra þessa ákvörðun mína og afhenti uppsagnarbréfið nú fyrir stundu.
Fyrir þessari ákvörðun liggja ýmsar ástæður og ættu í það minnsta sumar þeirra ekki að koma á óvart í ljósi þess sem ég hef sagt og skrifað á undanförnum misserum.
Við höfum á þessum sex árum sem ég hef verið framkvæmdastjóri lækninga og síðar forstjóri gengið í gegnum miklar breytingar á rekstrarumhverfi spítalans. Á sama tíma hefur tekist að mæta kröfum um mikinn niðurskurð en við höfum engu að síður náð að viðhalda viðunandi þjónustustigi og árangri. Öll gögn sem fyrir liggja staðfesta þennan eftirtektaverða árangur og er fyrst og síðast staðfesting á þeirri elju og fagmennsku sem einkennir starfið á spítala allra landsmanna.
Ég hef ítrekað bent stjórnvöldum á að lengra verði ekki gengið í niðurskurðaraðgerðum á Landspítala og að slíkt myndi leiða okkur í ógöngur. Ég hef lagt áherslu á þá grundvallarskoðun mína að enduruppbyggingartíminn sé núna, óbreytt ástand er ekki valmöguleiki. Með því á ég ekki einungis við að auka þurfi rekstrarfé spítalans heldur er umgjörð framtíðarstarfsemi hans einnig undir. Nýr Landspítali er m.a. forsenda þess að hér verði unnt að reka nútíma sjúkrahúsþjónustu sem laðar að hæft starfsfólk og veita góða þjónustu.
Ég vil þakka ykkur öllum fyrir samstarfið í tíð minni sem forstjóri spítalans. Það hefur verið ómetanlegt að starfa í þessu frjóa umhverfi og ég hef sérstaklega kunnað að meta þá aðstoð, ábendingar og uppbyggilegu gagnrýni sem ég hef fengið.
Mér er ljóst að hvað Landspítalann varðar er nauðsynleg uppbygging ekki í augsýn. Meðal annars þess vegna hef ég komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að standa upp frá góðu verki. Ég er stoltur yfir árangri spítalans og starfsfólks hans en kýs nú að takast á við nýjar áskoranir. Nýr stjórnandi fær nú tækifæri til að leiða spítalann og það frábæra starf sem hér er unnið.
Björn Zoëga