Á Vísindavökunni eru fluttir örfyrirlestrar. Meðfylgjandi er listi yfir örfyrirlestra að þessu sinni en þar eru tveir starfsmenn Landspítala meðal flytjenda, Ólöf Guðný Geirsdóttir og Tryggvi Helgason.
Salur 1:
17:00- 22:00: Falinn fjársjóður og Vísindi og nýsköpun.
Vísindaþáttabíó. Má bjóða þér að líta inn?
Stóri salur:
17:00 Setning Vísindavöku og afhending viðurkenningar Rannís fyrir Vísindamiðlun. Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
17:30 Norðurljósin. Hvernig verða norðurljósin til? Hvar og hvenær er best að sjá þau? Sævar Helgi Bragason Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness veit allt um rannsóknir á norðurljósunum.
17:50 Sýndarpersónur fyrir leiki og kvikmyndir. Verða aukaleikarar óþarfir? Hannes Högni Vilhjálmsson tölvunarfræðingur við HR segir frá sýndarfólki með gervigreind.
18:10 Of þung börn: einfalt en ekki auðvelt. Tryggvi Helgason barnalæknir sem starfar hjá Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins flytur örfyrirlestur um orsakir og hugsanlegar lausnir sem oft eru flóknari en virðist.
18:20 Sprengjugengið! Efnafræðinemar úr HÍ með frábærar efnafræðibrellur!
19:00 Kínverskt KungFu. Heilsudrekinn og Konfúsíusarstofnunin Norðurljós gefa innsýn í heillandi heim kínverskrar hreyfi- og bardagalistar, sem er órjúfanlegur hluti kínverskrar menningar.
19:20 CALMUS AUTOMATA – rauntíma tónsköpun. Kjartan Ólafsson prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands.
19:40 Snúum á elli kerlingu! Hvernig eflum við styrk og lífsgæði á fullorðinsárum? Örfyrirlestur um hvernig við getum bætt lífi við árin. Ólöf Guðný Geirsdóttir næringarfræðingur og Kristín Briem sjúkraþjálfari.