Líf, styrktarfélag kvennadeilda Landspítala, stendur sunnudaginn 29. september 2013 fyrir Globeathon sem er alþjóðlegt hlaup til að efla vitund, þekkingu og rannsóknir tengdar krabbameinum í kvenlíffærum.
Hlaupið fer fram í 80 löndum víðsvegar um heiminn á sama tíma þann 29. september.
Boðið verður upp á tvær vegalengdir, 5 kílómetra göngu/hlaup og 10 kílómetra hlaup.
Ræst verður fyrir utan kvennadeildahús Landspítala kl. 13:00.
Skráning og allar frekari upplýsingar eru á hlaup.is
Einnig upplýsingar á globeathon.com og Facebook síðu hlaupsins: Globeaton-Ísland