Bryndís Hlöðversdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Landspítala. Hún hefur störf um miðjan september næstkomandi. Umsækjendur um starfið voru 35.
Bryndís útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1992. Hún var rektor Háskólans á Bifröst frá byrjun árs 2011 til júní 2013. Áður hafði hún gegnt stöðu aðstoðarrektors og verið deildarforseti lagadeildar á Bifröst frá 2005. Bryndís var þingmaður frá 1995 til 2005 og á árunum 1992 til 1995 var hún lögfræðingur Alþýðusambands Íslands. Bryndís hefur verið stjórnarformaður Landsvirkjunar frá 2009 og hefur auk þess gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa.
Góður vinnustaður er eitt af megin markmiðum spítalans. Þekking og reynsla Bryndísar mun nýtast vel við það mikilvæga verkefni.