Leikstofa Barnaspítala Hringsins hefur fengið að gjöf 100 DVD barna- og fjölskyldumyndir. Gefandinn er Árdís Þórðardóttur sem hefur rekið myndbandaleiguna Videoheima i Fákafeni. Verið er að loka vídeóleigunni og þess vegna gaf Árdís leikstofunni DVD diskana. Útsala er á DVD myndum í Fákafeni út ágúst.
Margar sígildar og vinsælar myndir voru meðal þeirra sem leikstofan fékk, svo sem Disney myndir og myndir eftir Astrid Lindgren.
Margar sígildar og vinsælar myndir voru meðal þeirra sem leikstofan fékk, svo sem Disney myndir og myndir eftir Astrid Lindgren.