Magnús Birgisson hefur verið ráðinn deildarstjóri launadeildar Landspítala frá og með 1. júlí 2013. Hann lauk kandídatsprófi í af reikningshalds- og endurskoðunarsviði HÍ árið 1994 og hefur auk þess lokið öllum námskeiðum til meistaraprófs í viðskiptafræði frá sama skóla. Magnús starfaði í nokkur ár sem deildarstjóri á launadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Einnig hefur hann starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Skýrr hf. (nú Advania) við uppsetningu á launaþjónustu félagsins og innleiðingu á Oracle launakerfi hjá ríki og Reykjavíkurborg.
Leit
Loka