Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisherra kom í heimsókn á Grensásdeild 8. júlí 2013. Með honum í för voru Sveinn Magnússon skrifstofustjóri í ráðuneytinu og Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir, aðstoðarmaður ráðherrans. Stjórnendur á endurhæfingardeildinni á Grensási sýndu gestunum húsnæðið og sögðu frá núverandi starfsemi, framtíðarhorfum og væntingum.
Leit
Loka