World Class og Endurhæfing LR hafa staðfest að framhald verði á farsælu samstarfi þeirra á milli. World Class hefur styrkt starfsemi deildarinnar með því að gefa þjónustuþegum deildarinnar líkamsræktarkort.
Endurhæfing LR þjónustar ungt fólk með geðrofssjúkdóma og hefur hreyfing reynst mikilvægur þáttur í þeirri endurhæfingu sem deildin býður upp á. World Class mun því halda áfram að styðja dyggilega við geðheilbrigðisþjónustu á landinu með þessu veglega framlagi.