Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra var í heimsókn á Landspítala fimmtudaginn 6. júní 2013. Þetta var fyrsta heimsókn ráðherrans á spítalann. Heilbrigðisráðherra fór um Landakot, Barnaspítala Hringsins, skurðstofur, gjörgæslu og röntgendeild við Hringbraut, bráðamóttöku og lungnadeild í Fossvogi og deildir á Kleppi.
Myndin fyrir ofan: Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra á Landspítala 6. júní 2013. Á vökudeildinni voru meðal annarra Auðna Margrét Haraldsdóttir hjúkrunarnemi og Hólmfríður Rósa Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur.