Lionsklúbburinn Víðarr hefur fært legudeild hjarta- og lungnaskurðdeildar 12E á Landspítala Hringbraut að gjöf færanlegt rafmagns brjóstholsdren af nýjustu gerð.
Á deildinni liggja sjúklingar eftir stórar hjarta- og brjóstholsskurðaðgerðir eða brjóstholsáverka. Stór hluti sjúklinganna fær brjóstholsdren og eru svona tæki því stöðugt í notkun. Brjóstholsdren af þeirri tegund sem nú var gefið er með hleðslurafhlöðu sem gerir sjúklingum kleift að komast fyrr á fætur en ella og flýtir þannig fyrir bata.
Hópur félagsmanna í Lionsklúbbnum Víðarr afhenti gjöfina formlega á hjarta- og lungnaskurðlækningadeild 12 E þriðjudaginn 4. júní 2013 og var kært þakkaður höfðingsskapurinn. Heildarverðmæti tækisins er nærri 600.000 kr.