Bingóið verður í salnum Gullteigi á Grand hótel og hefst klukkan 20:00. Allur ágóði bingósins rennur óskiptur til framkvæmda á kvennadeildunum.
Árið 2011 stóð Líf fyrir landssöfnun sem fjármagnaði endurbætur á sængurkvennagangi Landspítala. Nú liggja fyrir endurbætur á kvenlækningadeild og hefur Líf aflað fjármagns til þeirra með ýmsum hætti, meðal annars með göngu Vilborgar Önnu Gissurardóttur á suðurpólinn.
Bingóstjóri verður Heiða Ólafsdóttir söngkona.