Nýr vefur Grensásdeildar var opnaður á 40 ára afmælishátíð hennar 31. maí 2013. Vilhelmína Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs, opnaði vefinn formlega.
Nýi vefurinn er unninn í Lisa Live vefumsjónarkerfinu frá Advania og hluti af upplýsingavef Landspítala. Advania gaf Grensásdeild vinnu starfsmanna sinna við hönnun og uppsetningu á vefnum og Hollvinir Grensásdeildar kostuðu gerð myndefnisins..
Með nýjum vef verður efni um Grensásdeild mun aðgengilegra en áður og auðvelt að nálgast það hvort sem heldur er á vef Landspítala eða eftir beinu vefslóðinni www.landspitali.is/grensasdeild.is. Þess er vænst að upplýsingar gagnist vel sjúklingum, aðstandendum þeirra, heilbrigðisstarfsfólki og almenningi.