Háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala hefur fengið að gjöf tölvustýrt staðsetningartæki að verðmæti 18 milljónir króna. Gefandinn er Heiðar Guðjónsson hagfræðingur og fjölskylda með þakklæti fyrir góða og örygga þjónustu Landspítala. Þetta er langþráð tæki í starfseminni og mun nýtast í flóknum skurðaðgerðum í kúpubotni, afholum nefs og eyrum bæði á börnum og fullorðnum. Á Landspítala hefur ekki verið til slíkt tæki sem er sérstaklega þróað fyrir aðgerðir á þessu svæði. Gjöfin mun því bæði auka öryggi sjúklinga sem þurfa að gangast undir slíkar skurðaðgerðir og stytta aðgerðartíma.
Leit
Loka