Stjórn Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Samkvæmt skipulagsskrá skal sjóðurinn styrkja skurðmeðferð brjóstakrabbameins við Landspítala og verða umsóknir að taka mið af því.
Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins og skipulagsskrá má nálgast á vefsíðunni www.maggaodds.is. Upphæð styrks sem sótt er um skal rökstudd. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og ákveður styrkupphæð. Stjórnin áskilur sér rétt til að leita eftir frekari upplýsingum en fram kunna að koma í umsókn ef þurfa þykir.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi til formanns stjórnar minningarsjóðsins, Hauks Oddssonar, fyrir 1. september 2013, á tölvupóstfang ho@borgun.is