Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði veggspjaldasýningu Vísinda á vordögum á Landspítala 24. apríl 2013. Sýningin er í K-byggingu á Landspítala Hringbraut og verður almenningi opin þar til 2. maí.
Með opnun veggspjaldasýningarinnar hófst þessi árlega uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala þar sem er meðal annars útnefndur heiðursvísindamaður spítalans og ungur vísindamaður spítalans hvers árs.
Yfirlit og ágrip veggspjalda (fylgirit Læknablaðsins nr. 76)