Nýr Landspítali ohf. auglýsir frá og með þriðjudegi 23. apríl 2013 eftir umsækjendum til að taka þátt í útboði á hönnun nýrra bygginga sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Um er að ræða opið forval bjóðenda auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) en útboðin verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Fjögur aðskilin útboð
Fullnaðarhönnun heildarverkefnisins er skipt upp í fjögur aðskilin hönnunarútboð; um 58.500 m² meðferðarkjarna, um 14.000 m² rannsóknarhús, um 21.300 m² bílastæðahús (með skrifstofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel.Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda og öllum bjóðendum sem uppfylla kröfur forvalsgagna og standast þannig forval er boðið að taka þátt í lokuðum aðskildum hönnunarútboðum fyrir hverja byggingu fyrir sig, þ.e. meðferðarkjarna, rannsóknarhús, sjúkrahótel og bílastæðahús. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvalinu.
Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönnun muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir.
Kynningarfundur 14. maí
Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa frá og með 23. apríl. Kynningarfundur fyrir væntanlega þátttakendur í forvali verður í Hringsal við Barnaspítala Hringsins þriðjudaginn 14. maí kl 14:00–16:00.Opnað verður fyrir umsóknir hjá Ríkiskaupum mánudaginn 22. júlí, kl. 11:00. Miðað er við að niðurstaða forvalsins verði kynnt þriðjudaginn 20. ágúst.
Undirbúningur vegna fyrsta áfanga uppbyggingar við Hringbraut hefur staðið um þó nokkurt skeið. Í nóvember lauk SPITAL hönnunarteymið við forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4. apríl.