Soroptomistaklúbbur Árbæjar hefur fært Líf, styrktarfélagi kvennadeilda Landspítala, 500 þúsund krónur. Féð verður notað til uppbyggingar á kvenlækningadeild 21A og fer í söfnun Vilborgar Örnu pólfara. Það er afrakstur árlegs vinkvennakvölds sem klúbburinn efnir til í þeim tilgangi að afla fjár til góðgerðarmála. Í þetta sinn var ákveðið að kvennadeildir Landspítala nytu söfnunarfjárins, meðal annarra. Soroptimistakonurnar úr Árbæ sóttu kvennadeildirnar heim til að afhenda féð og var þakkaður stuðningurinn. Í leiðinni skoðuðu þær húsakynnin og fræddust um starfsemina.
Leit
Loka