Tilkynning frá sýkingavarnadeild Landspítala:
Sýkingavarnadeild Landspítala hefur beint því til starfsfólks að vera vel vakandi og bregðast hratt og rétt við ef sjúklingar koma inn með Nóró einkenni og ef grunur er um að starfsmaður sé með Nóró. Töluvert er um Nóróveiru í samfélaginu. Nóróveira veldur bráðri iðrasýkingu og einkennin eru meðal annars uppköst, niðurgangur, kviðverkir og jafnvel hiti.