Breyttar áherslur í stjórnendaþjálfun, áhersla á endurgjöf um frammistöðu í starfi, áhersla á betri samskipti, aukin fræðsla um líkamsbeitingu og lagfæring á búningsaðstöðu.
Þetta er meðal þess sem unnið hefur verið að á Landspítala eftir ábendingar sem komu fram hjá starfsmönnum spítalans í starfsumhverfiskönnun árið 2012. Forstjóri Landspítala boðar í föstudagspistli til nýrrar könnunar af sama tagi og hvetur starfsmenn spítalans til þátttöku.