Félag nýrnasjúkra hefur fært skilunardeild Landspítala að gjöf ómtæki/æðaskanna. Það er mikið framfaraspor fyrir deildina að hafa slíkt tæki en með því er hægt að sjá legu fistilst (æðaaðgengis) sem gerir stungur í fistilinn léttari bæði fyrir hjúkrunarfræðing og sjúkling.
Sumarið 2011 gáfu ástvinir Eddu Svavars frá Vestmannaeyjum Félagi nýrnasjúkra tvær milljónir króna til minningar um Eddu en hún var einn af stofnendum þess. Þegar félaginu barst þessi rausnarlega gjöf var ákveðið að nota hana til tækjakaupa fyrir skilunardeild og kaupa ómtæki. Til þess að svo mætti verða þurfti að afla talsverðrar fjárhæðar til viðbótar og hratt félagið þess vegna af stað söfnun. Hún gekk vel og var leitað til ýmissa félagasamtaka auk þess sem allt áheitafé úr Reykjavíkurmaraþoni rann í söfnunina.