Upplýsingavefur Landspítala (www.landspitali.is) verður uppfærður á árinu 2013 hvað varðar innihald, efnistök, skipulag efnis og útlit. „Gerum vefinn betri“ er leiðarljós verksins sem er unnið af starfsmönnum Landspítala með stuðningi vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá ehf. og hugbúnaðarfyrirtækisins Advania ehf.
Landspítali vill vera með góðan upplýsingavef fyrir sjúklinga, aðstandendur og alla þá fjölmörgu aðra sem eiga í samskiptum við spítalann. Við uppfærsluna er því lögð áhersla á að fá ábendingar notenda um það hvernig hægt er að gera vefinn betri.
- Óskað er eftir þátttöku þinni í verkefninu „Gerum vefinn betri“ með því að svara örfáum spurningum. Niðurstaðan verður notuð af verkefnahópum í uppfærslunni. Vefkönnuninni lýkur 26. febrúar 2013.