Allar rauðkornaeiningar sem framleiddar eru í Blóðbankanum eru hvítkornasíðaðar frá lokum janúar 2013. Sú breyting felur í sér mikinn heilsufarslegan ávinning fyrir sjúklinga og auk þess hagræðingu. Á næstu vikum verður sett upp framkvæmdaáætlun fyrir sams konar ferli fyrir blóð sem safnað er í starfsstöð Blóðbankans á Akureyri.