„Veggir" eftir Ingvar Högna Ragnarsson, frá árinu 2012, hefur verið komið fyrir í anddyri bráðamóttökunnar á Landspítala Fossvogi. Um er að ræða ljósmyndaprent, 5 myndir að tölu og hver þeirra 64,2 x 80 sentimetrar að stærð.
Verkið er keypt fyrir framlag úr Listskreytingasjóði ríkisins árið 2011. Formaður sjóðsins, Steinþór Kári Kárason, afhenti verkið formlega 7. febrúar 2013 að viðstöddum listamanninum, listmuna- og minjanefnd Landspítala, starfsmönnum á bráðasviði og fleiri gestum.