Frá framkvæmdastjórn Landspítala:
Framkvæmdastjórar á Landspítala komu saman í hádeginu í dag, 7. febrúar 2013, til að fara yfir stöðuna.
Mjög mikið álag er vegna yfirlagna á öllum spítalanum fyrst og fremst vegna mikillar aðsóknar og þess að hér eru um 50 sjúklingar sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili. Að auki hefur verið lokað fyrir innlagnir á blóðlækningadeild vegna VRE sýkingar. Þar er unnið hörðum höndum að því að uppræta sýkinguna.
Hafin er vinna við að opna fleiri rúm um helgina á lyflækningasviði, skurðlækningasviði og kvenna- og barnasviði og því að bæta í mönnun hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og lækna.
Við viljum koma á framfæri þakklæti til alls starfsfólks Landspítala fyrir þeirra góðu vinnu á þessum erfiðu tímum.