Vilborg hélt úti bloggsíðunni Lífsspor.is og er hún enn opin. Þar deilir Vilborg hugsunum sínum frá ferðalaginu og myndum.
Starfsfólk kvennadeilda lýsti áðdáun sinni á þeim kjarki og þori sem Vilborg Arna hefði og óskaði henni innilega til hamingju með þetta mikla afrek. Við komuna afhenti starfsfólkið henni gjafir, þar á meðal nuddinniskó fyrir lúna fætur! Einnig fékk hún hárvörur en margir hugsuðu til hennar hvernig það hefði eiginlega verið að geta ekki farið í sturtu í 60 daga! Loks fékk hún baknuddtæki og blóm.
Líf, styrktarfélag kvennadeildar, heldur móttöku fyrir Vilborgu Örnu í Hörpunni næstkomandi sunnudag, 3. febrúar, kl. 15:00 og eru allir velkomnir.