Frá framkvæmdastjórn Landspítala:
Framkvæmdastjórn Landspítala hélt fund með yfirlæknum og deildarstjórum í hádeginu í dag, 29. janúar 2013, til þess að fara yfir stöðu mála vegna plássleysis og flensu.
Ákveðið var að draga enn frekar úr valstarfsemi og sett fram áætlun um að fjölga sjúkrarýmum og auka mönnun til þess að mæta áframhaldandi þörf.
Áfram er fylgst vel með fjölda sjúklinga á spítalanum og staðan endurmetin daglega.
Allt starfsfólk spítalans hefur verið beðið að aðstoða frekar við þessa vinnu.
Spítalinn verður áfram á óvissustigi.