Viðbragðsstjórn Landspítala kom saman eftir hádegi í dag, laugardaginn 26. janúar 2013. Einangrunum vegna flensu hefur fjölgað aftur og er heildarfjöldi þeirra á spítalanum í dag 34. Í dag verður plássum fjölgað til að mæta aukinni þörf.
Viðbragðsstjórn kemur næst saman á morgun kl.13:30 og fer ítarlega yfir stöðuna.
Fyrri tilmæli til almennings um takmarkanir á heimsóknum gilda áfram.
Bestu þakkir til alls starfsfólks spítalans sem hefur lagst á eitt.
Fyrir hönd viðbragsstjórnar,
Ólafur Baldursson Sigríður Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri lækninga framkvæmdastjóri hjúkrunar