Nýársgleði Rjóðurs var haldin laugardaginn 5. janúar 2013. Páll Óskar, Sveppi og Villi og Ásgeir Trausti komu og sungu og spiluðu. Börnin sem koma í hvíldarinnlagnir, um 35 talsins, fjölskyldum þeirra og starfsfólki Rjóðurs ásamt börnum var boðið að taka þátt. Þetta var sérstaklega vel heppnað í alla staði og mikil gleði sem ríkti í Rjóðrinu. Boðið var upp á hressingu í lokin og allir fóru glaðir heim.
Leit
Loka