Óskað er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarson árið 2013.
Verðlaunin nema 3,5 milljónum króna og eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í vísindastörfum á sviði læknisfræði og skyldra greina.
Tilnefningar ásamt greinargerð sendist til Elínar H. Ísleifsdóttur elinis@landspitali.is, skrifstofu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala, í síðasta lagi 15. febrúar 2013.
Verðlaunahafi verður kynntur á ársfundi Landspítala vorið 2013.