Jón Snædal, yfirlæknir heilabilunareiningar lyflækningasviðs og klínískur dósent, hefur tekið við formennsku af Kristjáni Steinssyni yfirlækni í endurskipaðri siðanefnd Landspítala . Kristján gegndi formannsstarfinu síðastliðin 6 ár.
Siðanefnd Landspítala er þverfagleg nefnd sem fjallar um vísindarannsóknir á spítalanum. Skipað er í hana samkvæmt reglugerð nr. 286/2008 um vísindarrannsóknir.
Nánari upplýsingar um nefndina á vefsvæði hennar.