Áætluð hagræðing við byggingu nýs Landspítala næst þótt að henni verði staðið á annan hátt en fyrirhugað var, segir Björn Zoëga, forstjóri spítalans, í mánudagspistli sínum.
Forstjórinn boðar í pistlinum breytingar á skipuriti Landspítala um áramótin þegar þrjú stoðsvið sameinast í eitt og það fjórða verður deild á skrifstofu forstjóra.