Hollvinir Grensásdeildar standa fyrir jólabasar og tónleikum til styrktar starfseminni þar.
Jólabasar
Jólabasar Hollvina Grensásdeildar verður laugardaginn 17. nóvember 2012
kl 13:00-17:00
í safnaðarheimili Grensáskirkju.
Margs konar handunnir munir sem henta vel til gjafa.
Kaffi, súkkulaði og vöfflur!
Styrktartónleikar
Caritas Ísland stendur fyrir styrktartónleikum fyrir Hollvini Grensásdeildar í þágu endurhæfingar á Íslandi.
Tónleikarnir verða í Kristskirkju, Landakoti, sunnudaginn 25. nóvember 2012 og hefjast kl. 16:00.
Meðal flytjenda eru söngvararnir Kristján Jóhannsson og Hulda Björk Garðarsdóttir.
Nánar á auglýsingu.