"Hjálpumst að" heitir jólakort Hringins 2012 en það er hannað af Lindu D. Ólafsdóttur og prentað af Prentmet ehf. Á kortinu er mynd (bæði á fram- og bakhlið) af jóladvergum sem eru að skreyta jólatréð sitt.
Ágóðinn af sölu jólakortsins rennur að venju í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Áprentaður texti er: „Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár”. Einnig fást kortin án texta.
Kortin eru seld í 10 stk. pökkum með hvítum umslögum á 1.100 krónur pakkinn.
Jólapakkakort (Til- og Frá-miðar) með hluta af sömu mynd eru einnig til sölu á 500 krónur pakkinn (10 kort).