Eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundi hjúkrunarráðs Landspítala 17. október 2012:
Hjúkrunarráð Landspítala skorar á Alþingi Íslendinga og Reykjavíkurborg að veita nýjum Landspítala við Hringbraut brautargengi, þrátt fyrir neikvæða umræðu undanfarið.
Ákvörðun um staðsetningu Landspítala var tekin fyrir 10 árum. Helstu rökin voru m.a. nálægð við Háskóla Íslands, að þannig tengdist spítalinn best stórum umferðaræðum og að þar sé mesta byggingarmagn fyrir. Ákvörðunin var tekin í samvinnu við borgaryfirvöld sem töldu að framtíðaruppbygging á þessum stað yrði lyftistöng fyrir miðborgina.
Margir hafa áhyggjur af aukinni umferð sem óneitanlega fylgir stórum vinnustöðum sem þessum. Spyrja má hvað byggt yrði í staðinn við Hringbrautina, ef ekki verður af byggingu Landspítala. Myndi dýrmætt byggingarsvæði svo nálægt miðborginni ekki verða nýtt undir aðrar byggingar sem einnig kalla á aukna umferð um svæðið?
Það er ljóst að ef byggja á Landspítala upp frá grunni á öðrum stað, yrði sú framkvæmd mjög kostnaðarsöm og myndi tefja uppbyggingu um mörg ár eða áratugi. Núverandi húsnæði á Landspítala er úr sér gengið. Nýr spítali er aðkallandi og mun gjörbreyta aðstæðum fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Sjúklingar sem leggjast á Landspítala eru mun veikari en áður og þurfa flóknari og sérhæfðari þjónustu. Alvarlegar spítalasýkingar hjá sjúklingum og faraldrar eru einnig vaxandi vandamál í heilbrigðiskerfinu. Nýr spítali mun gjörbylta allri aðstöðu til að sinna þessum sjúklingum. Einnig þarf að byggja húsnæði yfir tæki og tól sem tilheyra nútíma heilbrigðisþjónustu.
Nálægð Landspítala við Háskóla Íslands er mikilvæg og eykur möguleika á samvinnu, hagræðingu, nýsköpun og hagnýtingu rannsókna. Fjölmörg sprotafyrirtæki í heilbrigðisvísindum sýna hvers megnug slík samvinna er og ljóst er að tækifærin eru fjölmörg.