Samtökin Litlir englar, í samstarfi við styrktar- og menningarsjóð Norvikur, færði meðgöngu- og sængurkvennadeild Landspítala ísskáp að gjöf. Ragnheiður Björg Árnadóttir frá Litlum englum og Gísli Jón Magnússon frá Norvik afhentu gjöfina og veitti starfsfólk deildarinnar henni viðtöku. Ísskápurinn kemur að góðum notum fyrir skjólstæðinga deildarinnar sem sumir takast á við erfiðan missi á meðgöngu.
Leit
Loka