Bráða- og göngudeild G3 á Landspítala Fossvogi hefur fengið netfang fyrir þjónustu deildarinnar.
Netfangið er bradagongudeildG3@landspitali.is
Á bráða- og göngudeild er tekið á móti sjúklingum sem eru minna veikir eða með áverka eftir slys. Þar er einnig göngudeildarþjónusta með eftirmeðferð fyrir fólk sem hefur verið hjá sérgreinalæknum á Landspítala.