Frá viðbragðsstjórn Landspítala:
Viðbragðsstjórn Landspítala og undirbúningsaðilar vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks spítalans fyrir þáttöku í björgunaræfingu laugardaginn 6. október 2012. Gera má ráð fyrir að um 200 heilbrigðisstarfsmenn á Landspítala hafi tekið virkan þátt í undirbúningi æfingarinnar sem og ummönnun slasaðra sem voru fluttir á spítalann líkt og um raunverulegt hópslys hefði verið að ræða.