Blóðgjafafélagið og Blóðbankinn standa fyrir hátíðarhöldum í Blóðbankanum við Snorrabraut fimmtudaginn 14. júní 2012 á alþjóða blóðgjafadeginum. Opið verður til kl. 19:00.
Í hádeginu verða grillaðar pylsur í boði og þeir sem gefa blóð þennan dag fá rauða rós frá blómabændum. Frá kl. 17:00 til 19:00 verða grillaðar pylsur, blöðrur, hoppukastali og andlitsmálun fyrir börnin. Ingó í Veðurguðunum skemmtir með spili og söng milli kl. 16:00 og 17:00.
Í Blóðbankanum á Akureyri fá blóðgjafar rauða rós í tilefni dagsins og gott með kaffinu. Opið verður til kl. 14:00.