Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands hefur fært fæðingardeild Landspítala að gjöf Compact II fæðingarrúm með fylgihlutum. Verðmæti gjafarinnar er um 2,2 milljónir króna.
Kvennadeildin hefur með gjöfum sínum verið afar liðtæk í stuðningi við fæðingardeildina. Þetta er til dæmis sjötta fæðingarrúmið sem hún gefur síðan 1995. Þannig eru öll fæðingarrúmin á fæðingardeildinni gjöf Kvennadeildar Reykjavíkudeildar Rauða kross Íslands.