Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauðakross Íslands hefur fært hjúkrunardeild L2 og öldrunarlækningadeildum L3, L4, K1 og K2 á Landspítala Landakoti að gjöf Icare PRO augnþrýstimæli. Hann mun gagnast öllum öldruðum sjúklingum sem dveljast á Landakoti.
Með nýja augnþrýstimælinum verður auðveldara að mæla augnþrýsting (glákupróf) án þess að deyfa þurfi auga sjúklingsins.
Leit
Loka