Halldóra Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á krabbameinslækningadeild 11E á Landspítala frá 1. maí 2012.
Halldóra lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2000, diplómanámi í krabbameinshjúkrun frá HÍ árið 2006 og meistaranámi í hjúkrunarstjórnun frá HÍ árið 2010. Hún hefur unnið á 11E frá árinu 2001 og verið aðstoðardeildarstjóri frá árinu 2004.