Kynning á innra skipulagi og starfsemi í meðferðarkjarna nýs Landspítala verður haldin fyrir starfsmenn spítalans:
- Mánudaginn 5. mars 2012 í Blásölum á 7. hæð í Fossvogi kl. 13:00-16:00
- Þriðjudaginn 6. mars 2012 í Ásnum inn af matsal við Hringbraut kl. 13:00-16:00
Dagskrá:
13:00-13:30 Almenn kynning á verkefninu
13:30-14:00 Bráðamóttaka
14:00-14:30 Myndgreining og endurhæfing
14:30-15:00 Skurðstofur, gjörgæsla, vöknun, þræðing
15:00-16:00 Legudeildir
Starfsmenn geta hvort sem er komið á alla kynninguna eða einstaka hluta hennar.
Notendastjórn nýs Landspítala (Ásdís Ingþórsdóttir, Aðalsteinn Pálsson, Gísli Georgsson, Gyða Baldursdóttir, Jóhannes M. Gunnarsson) sér um kynninguna og svarar spurningum starfsmanna.