Gleði skein úr andlitum barnanna á öskudaginn á Barnaspítala Hringsins þar sem allir tóku þátt í gleðskap í tilefni dagsins, börn og starfsfólk.
Fulltrúar Sambíóanna, Alfreð og Magnea, komu í heimsókn á leikstofuna og sýndu bíómyndina Stígvélaða köttinn á breiðtjaldi, auk þess sem þau komu með poppvél og buðu upp á popp, gos og nammi!