Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, kom færandi hendi á leikstofu Barnaspítala Hringsins 30. desember 2011. Hann gaf Andra Brynjarssyni, 11ára dreng sem hefur til margra mánaða átt við þrálát veikindi að stríða, treyju af sér og handbolta. Andri var alsæll með þessa höfðinglegu gjöf sem gladdi hann mjög í veikindunum þar sem hann getur ekki sjálfur "stundað boltann" að sinni.
Leit
Loka