Unglingar úr félagsmiðstöðinni Tíunni í Árbæ komu á leikstofuna á Barnaspítala Hringsins 22. desember 2011 færandi hendi. Þeir höfðu haldið styrktarviku með balli og bingói þar sem margir styrktaraðilar lögðu gott til og gáfu sína vinnu. Alls söfnuðust um 150 þúsund krónur. Fyrir þá upphæð voru keypt vel valin spil, DVD mynddiskar og tölvuleikir fyrir leikstofuna. Í þessum hugulsama hópi, sem var vel fagnað á leikstofunni, voru um 35 ungmenni.
Leit
Loka