Marel hefur fært dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala að gjöf fullkomna líkamsvog fyrir sjúklinga. Hún leysir af hólmi eldri vog og kemur í góðar þarfir. Marel hannaði voginaog framleiðir hana. Valdimar Gestsson, þjónustustjóri Marels á Íslandi og Óskar Óskarsson, sölustjóri Marels á Íslands, afhentu Gunnhildi Magnúsdóttur, deildarstjóra dagdeildar blóð- og krabbameinslækninga, gjöfina.
Leit
Loka